Kasteel Blonde

   
Brugghús : Brouwerij Van Honsebrouck
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískt sterk öl
ÁFERÐ : Appelsínugulur og tær
ALKÓHÓL : 11.0%
FYRST SMAKKAÐ : 8/6'03 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIRKasteel bier er að mörgum talinn með betri desert bjórum Belgíu.  Ég get verið sammála því að þessi henti líklega best sem desert bjór eða sem afslappari fyrir svefninn en bestur er hann ekki.   Bjór þessi er afar alkóhólríkur eða 11.0% hann er látinn þroskast í um 3 mánuði í köldum kjöllurum hins 18. aldar Ingelmunster kastala sem fjölskyldan Van Honsebrouk festi kaup á 1980. Bjórinn er afar fallegur í glasi sínu, appelsínugulur og tær með sæmilegan froðuhaus.  Úr glasinu líður svo þessi svakalega mikla lykt þrungin appelsínum, kryddi og vínanda.  Þegar í munn er komið þá taka vonbrigðin við, þetta er mikill bjór með miklu alkóhólbragði sem yfirgnæfir allt annað.  Með lagni má þó greina krydd, vín og humla og kannski ögn vanillu en alkóhólið skemmir samt nautnina.  Fínn bjór á köldu vetrarkvöldi  fyrir þá hörðustu.

 

Einkunn:  Eldfimur bjór!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>