K:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Klausturbjór (bjórstíll) - Kriek (bjórstíll) - Kölsch (bjórstíll

Klausturbjór :
Klausturbjór er bjórstíll frá Belgíu sem ættaður er úr hinum fornu klaustrum.  Í þá gömlu góðu þá var algengt að munkarnir brugguðu ákveðna gerð öls sem þeir svo notuðu til að hjálpa sér í gegnum föstuna...........eins konar fljótandi brauð.  Bjór þessi var matarmikill, alkóhólríkur og vel frúttaður.  Í dag er aðeins hægt að fá 6 alvöru klausturbjóra og bera þeir þá merkið Trappist sem þýðir að um alvöru klausturbjór er að ræða, þ.e.a.s. bruggaður innan veggja raunverulegs klausturs af raunverulegum munkum.  Til er aragrúi af klausturbjórum sem ekki eru Trappist en þetta eru afar ljúffengir bjórar sem bruggaðir eru eftir hinum fornu aðferðum munkanna.

Dæmi  - Leffe (ekki trappist) og  Chimay

Kriek :
Þetta er enn eitt belgíska undrið sem gert er úr Lambic sem bragðbættur er með kirsuberjum.  Berin eru marin og sett saman við bjórinn í síðari gerjun.  Afar frískandi bjór! Kriek þýðir kirsuber á flæmsku. 

Dæmi - Belle-Vue Kriek

Kölsch - kölski :
Kölski er gamall þýskur bjórstíll upprunninn frá Köln fyrir tíma lagersins.  Þetta er ljóst og stundum gruggað öl með léttum humlum og dálítið þurrt.  Frekar alkóhólríkur og örlítið mjólkurkenndur.