|
Hér
er afar dularfullu bjór á ferð. Bjór þessi sem kemur
frá tiltölulega ungu brugghúsi er í raun alveg nýr
bjórstíll, ja eða þannig. Bjór þessi varð til fyrir
slysni þegar menn notuðu bjór til að undirbúa eikartunnur
sínar fyrir viskí þroskun og fá þannig ögn af
bjórkarakternum í eikina. Það kom svo á daginn að
bjórinn varð alveg einstakur eftir þessa meðhöndlun, þ.e.a.s
30 daga dvala í tunnunum. Í nefi má finna dálítinn kókos og
toffee og í munni smýgur bjórinn um bragðlaukana með mikilli
karamellu, toffee og kókos. Heilmikið gos lífgar líka
uppá bjórinn sem og nettir humlar sem gera bjórinn óvæminn.
Ummm hnossgæti verð ég að segja! |