|
Sjaldan er einn bjórinn stakur!
Velkomin á
bjórsíðu Freysa
Til
hamingju, þér hefur einhvern veginn tekist að álpast inn á mitt litla
athvarf á hinum víðáttumikla veraldarvef! Hingað eru allir
velkomnir sem hafa einhvern áhuga á bjór en síða þessi, eins og einhvern
gæti verið farið að gruna, er tileinkuð besta drykk í heimi - bjórnum !
Bjórinn
er elsta og vinsælasta áfengi heimsins og hefur fylgt
manninum í um 5000 ár. Á þeim tíma hefur hann sett mark sitt á ýmis
menningarsamfélög og fest sig í sessi sem einn vinsælasti drykkur
veraldar. Menn dá þennan mjöð af ýmsum ástæðum, sumir vilja bara fá
vínandann yfir sig og komast í gott skap á meðan aðrir hafa unun af því að
kryfja bjórinn til mergjar og upplifa alla þá fjölbreytni sem drykkurinn hefur upp á að bjóða. Ég er einn af þeim síðar nefndu, en
fyrir nokkrum árum komst ég að því að bjór er ekki bara bjór heldur
eitthvað miklu miklu meira. Fljótlega upp frá því fór ég að fikta við það að
bragða á hinum ýmsu tegundum og skrá álit mitt á hverjum bjór í
sem varð til sem eins konar bókhald yfir þessa smökkun. Þetta
markaði í raun upphafið af leit minni af hinum fullkomna bjór! Smelltu hér
til að fara beint í
bjórlistann og skoða mína dóma!
Auk bjórbókarinnar er hér að finna ýmsan
fróðleik
sem tengist blessuðum bjórnum
svona til að koma mönnum/konum aðeins meira inn í efnið. Fyrir þá sem eru
svo að spá í að víkka sjóndeildarhringinn og fara að spá meira í bjórnum
þá eru hér nokkur orð um
bjórsmökkun og svo auðvitað hvaða
glös er best
að nota fyrir hvern
bjórstíl! Til að auðvelda þetta allt saman þá hef
ég skrifað upp nokkrar
glósur með hugtökum sem tengjast bjórnum sem og örlitla samantekt úr öllum þessum fróðleik! Ef menn
hafa svo ekki fengið nóg af lesefni hér þá eru hér nokkrir áhugaverðir hlekkir
yfir á
aðrar bjórsíður
þar sem menn geta drukkið í sig enn meiri fróðleik. Flestir þessir
ofantöldu
hlekkir eru svo aðgengilegir frá öllum síðum þessarar heimasíðu (sjá bæði efst og til vinstri).
Í lokin vona ég bara að
þessi síða muni gagnast einhverjum og jafnvel auðvelda fyrstu
skrefin í leitinni að hinum fullkomna bjór og munið, það að panta bara bjór á
krá er eins og að panta pizzu án þess að tilgreina áleggið. Njótið vel og skál í botn!
Sendu mér endilega línu með ábendingum eða fyrirspurnum á : bjor@bjorbok.net |