| |
ATHUGASEMDIR: Þennan bjór krækti ég mér í
hérna um árið og smakkaði ég þá svo sem eina kippu eða svo.
Eins og miðinn bendir sterklega á þá er hér um að ræða
belgískt klaustur öl og textinn "dubbel" gefur vísbendingu um
að bjórinn sé alkóhólríkur. Þegar bjórnum hefur verið
hellt í glas má finna vel pakkaðan sætan ilm stíga upp þar sem
meðal annars gætir malts, ávaxta, málms og svo karamellu eða
jafnvel kirsuber.
Öl þetta er mjúkt við tönn og í góðum holdum, afar hressandi
hafður ögn kaldur. Vel berjaður bjór og má finna
kirsuber einhverstaðar í bakgrunni og möndlur. Alkóhólið
er ekki að trufla mann og svo fjarar þessi kall út með fínu
ljúfum keim sem breytist svo í kaffi. Nú er þessi bjór
hins vegar ekki lengur seldur hér og þykir mér það afar miður. |
|