| |
ATHUGASEMDIR: Þetta er einn af hinum
belgísku hveitibjórum og er afar vinsæll þar í landi.
Hoegaarden er mjög svalandi drykkur, en það eru þessir h veitibjórar
oftast. Ilmar mjög vel, mikill sítrónukeimur og krydd
eða kóriander og er alveg ágætur á bragðið. Þetta er léttur og
mildur bjór og afar svalandi. Humlar eru ekki
merkjanlegir og maltið ekki heldur en sítrus bragðið er
ríkjandi og svo krydd. Frúttið er ekki áberandi eins og
oft
er
í belgíska ölinu.
Ef menn eru að leita af svalandi og nettum hveitibjór hér
á landi þá er þessi alveg ágætur og hann fæst í ÁTVR.
ATH-Þessi bjór var í boði Lovísu!Endurmat hækkar
bjórinn úr 3 í 4 krúsir |
|