Het Kapittel Dubbel

   
Brugghús : Van Eecke
LAND : Belgía
STÍLL : Klausturöl
ÁFERÐ : Dökkbrúnn
ALKÓHÓL : 7,5%
FYRST SMAKKAÐ : 24.08.2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR: Van Eecke brugghúsið sem rekið getur feril sinn allt til 1642 er eitt af 3 brugghúsum í belgíska bænum Watou.  Brugghúsið er þekkt fyrir vel humlað brons-gyllt öl sem kallast Poperings Hommelbier.  Ég hef ekki smakkað þann bjór en það verður að gerast fljótlega því þetta fína klausturöl Kapittel Dubbel er afar gott öl og þá er við því að búast að Hommellinn sé enn betri.  Öl þetta ilmar afar vel með ferskum og sætum blóma eða hunangskeim og svo kirsuber.  Á tungu er þetta mikill bjór en þó ekki þungur, vel fullur og bragðmikill með sætum keim sem er einhvers konar blanda af hunangi, sætu malti og ferskum berjum.
Já þetta var kærkomin viðbót í bjórbókina en þetta fína öl var gjöf frá Sigrúnu og Jóhannesi og þakka ég þeim gott innlegg.  Mæli svo með því að menn prófi þennan fína kall.

 

Einkunn:  Góðgæti!

Fleiri frá Van Eecke:

Het Kapittel  Pater - 4.5

Poperings Hommelbier - 4.0

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>