Heineken
Special dark

   
Brugghús : Heineken
LAND : Holland
STÍLL : Dökkur lager (American Dark)
ÁFERÐ : Dökkur með rauðum blæ
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 10/9'99 Reykjavík
 

ATHUGASEMDIRHeineken ljós var eitt sinn minn uppáhalds bjór en síðan er langur tími liðinn.  Þessi er hins vegar dökkur en hefur þó ekki þetta einkennandi brennda maltbragð sem svo oft fylgir dökkum bjór.  Þetta er mildur og frekar léttur lager og vel spriklandi í munn. Í restina má greina smá dauft malt en ekkert svona kaffidæmi eins og maður er vanur með hinn dökka öl.  Í raun er ekki svo mikill munur á þessum og hinum ljósa Heinara, nema hvað að þessi er ögn sætari ef eitthvað er og ekki eins humlaður og sá ljósi.  Svo er hann auðvitað dökkur!

 

 

Einkunn:  Sæmilegur lager!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>