Hebridean Gold
Porridge Oat Ale

   
Brugghús : Isle Of Skye Brewery
LAND : Skotland
STÍLL : Skoskt öl (ALE)
ÁFERÐ : Koparlitaður
ALKÓHÓL : 4.3%
FYRST SMAKKAÐ : 27/6'03 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR: Þegar þessi bjór er smakkaður þá er hann í reynslusölu í ÁTVR og er það í raun helsta ástæða þess að ég smakka bjórinn.  Ég er ekki mikið fyrir ölið frá stóra Bretlandi og eyjunum í kring en ég ákvað þó að kanna málið. "Porridge Oat Ale" sem mætti þýða beint sem hafragrautar öl er skoskt hafraöl.  Nú gæti það hljómað illa í eyrum manna en mér finnst þetta pínu spennandi en ekki er óalgengt að nota hafra í öl.  Þetta er frekar ljóst öl með litla froðu sem hverfur frekar fljótt.  Þessi  fíni mjúki ölkeimur stígur upp úr glasinu með ögn sætu og ávöxtum..þó ekki mikið.  Í munni er þetta frekar flatt öl en þó alls ekki eins flatt og maður rekur sig oft á með enskt og skoskt öl.  Þetta er frekar milt öl en þó gætir biturleika frá humlunum sem vegur upp gosleysið.  Meðalgóð fylling og afar ljúft eftirbragð.

 

Einkunn:  Fínt skoskt öl!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>