Harboe Guldøl

   
Brugghús : Harboe Bryggeri
LAND : Danmörk
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 5.9%
FYRST SMAKKAÐ : 08.08.2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR: Hér í Árósum eru tvö stærri brugghús ef ég hef það rétt, annað er Ceres brugghúsið sem færir okkur t.d. Red Eric ofl og svo er það Harboe Bryggeri.  Þegar hér er komið sögu þá hef ég nú aðeins smakkað þennan eina frá Harboe en Guldølið þeirra er afar ódýr hér í verslunum.  Flaskan af þessum bjór kostar ekki nema 2.95 DKK eða um 30 kr.  Bjórinn er svo sem engin snilld, þetta er bara ágætur svaladrykkur í sumarhitanum hér í Árósum.  Verður að vera kaldur því annars laumast að manni einhver skúnkur sem ég kann ekki við.  Samt sem áður er þetta mildur bjór, nettir daufir humlar og ögn malt.  Lítil fylling og stutt eftirbragð hins vegar er þetta sterkur lager eða um 6.0% og því er auðvelt að fyllast fljótt. Ég mæli þó frekar með Carlsberg eða Faxe frekar en þessum en ef valið er á milli Tuborg og Harboe þá er það pottþétt Harboe.

 

Einkunn:  Sæmilegur lager!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>