H:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Humlar (hops) - Hveitibjór (Weizen/Wheat beer/Witbier, bjórstíll)

Humlar (hops) :
Humlar eru eitt af grunnefnum bjórsins hvort sem um ræðir öl eða lager. Humlar gefa bjórum sinn snarpa, frískandi karakter og biturleika.  Þegar bjór mjög bitur eða rammur þá eru það líklegast humlarnir að verki en ekki alkóhólið eins og sumir telja.  Til er aragrúi af humla afbrigðum í heiminum og eru þessi afbrigði mismunandi að gæðum og eiginleikum.  Af "gæðahumlum" má t.d. nefna hina frægu Saaz humla sem koma frá Tékklandi og svo Hakkertau humlarnir þýsku en þessir humlar þykja mjög bragðgóðir og lítið beiskir.

Hveitibjór:
Hveitibjórar tilheyra öl-fjölskyldunni en eins og nafnið bendir til innihalda þeir hátt hlutfall af möltuðu hveiti.  Belgískir hveitibjórar innihalda t.d. allt að 40% hveiti á móti 50% af byggi.  Þekktastir eru hveitibjórarnir frá Þýskalandi (weissbier) og Belgíu (witbier) en Bandaríkin ofl. þjóðir brugga líka sína hveitibjóra. Þessir bjórar eru þekktir fyrir að vera afar svalandi og ferskir og þeir eru oftast gruggugir í glasi.  Hinir fornu ávaxtabjórar Belgíu Lambick, Kriek, Frambozen, Gueuze ofl kallar eru allt saman hveitibjórar.

Dæmi um hveitibjóra eru t.d. : Eichbaum (þýskur) og Hoegaarden (belgískur).