| |
ATHUGASEMDIR: Þennan kannast nú flestir
við þó svo að ekki eins margir hafi smakkað hann!
Guinness er heimsfrægur Írskur
stát. Mjúkur eins og silki
og vel rjómakenndur rennur hann niður með ljúfu sterku maltbragði og
kaffikeim (gæti minnt á svissmokka?). Unaðslegt
eftirbragð með snefil af kaffi sem fjarar hægt út. Froðan er svo fallega bage lituð, mjúk eins og bómull
og þétt. Varðveitis
lengi og festist í glasinu (með gott íhald eins og maður segir
: ) ).
ATH - Drukkinn með lambasteik á frönskum veitingastað!
Hef svo líka smakkað hann með saltfisk en ég mæli ekki með
því. : ) |
|