|
Í
augum margra skiptir ekki nokkru máli úr
hvaða íláti bjór eða hver annar drykkur er
drukkinn, bara
að þeir komi honum ofan
í sig og þá eru þeir sáttir! Auðvitað
er þetta ekkert stórmál, menn hafa jú
sína
hentusemi. Hins vegar eru til þeir
sem vilja njóta síns bjórs til fulls og fá
nákvæmlega það út úr bjórnum
sem bruggarinn ætlaðist til. Ég segi
fyrir mitt leiti að ég get t.d ekki hugsað
mér að drekka rauðvín
úr mjólkurglasi eða kaffi úr
freyðivínsglasi, þó svo að bragðið sé nánast
það sama þá er það eitthvað sem skemmir
fyrir. Bragð er ekki allt þegar matur og
drykkur er annars vegar, það er að vísu stór
þáttur en útlit og stemning
kemur einnig við sögu. Þannig er þetta
líka með bjórinn, að drekka bjór úr
kaffibolla er bara ekki það sama og að
drekka hann úr fallegu glasi þar sem froðan
og liturinn fær að njóta sín til fulls og
réttur skammtur af lykt skilar sér til
neytandans. Það er ástæða fyrir
því að nánast er til sérstakt glas fyrir
hverja einustu bjórtegund.
Ég er ekki að segja að ómögulegt sé að njóta
bjórs nema með
akkúrat rétta glasinu, síður en svo.
Hins vegar er mjög gaman til þess að vita að
maður er að drekka bjórinn eins og hann á að
bragðast þegar maður er með rétt glas.
Svona glös eru samt heldur dýr og oft erfitt
að nálgast þau en menn verða þá að reyna að
nota glös með svipaða lögun undir
bjóra sína. Reyndar skiptir ekki miklu
máli hvernig hinir fjöldaframleiddu lager
bjórar eru drukknir, þeir bragðast eins í
hvaða glasi sem er, það eru aðallega hin
flóknu og miklu öl sem menn eru að
einbeita sér að.
En af hverju skiptir lögunin svona
miklu máli? Eins og fyrr segir þá fer
það eftir gerð bjórsins og eiginleikum hans
hvernig glas hentar best. T.d. má
nefna hin tignalegu þýsku hveitibjórs
glös (sjá mynd að ofan) en þau eru há og
víkka svo að ofan. Þessi lögun er
ætluð að varðveita hina miklu froðu sem
myndast þegar hveitibjór er hellt í glas.
Væri glasið lágt og opið myndi froðan alls
ekki njóta sín. Hið
glæsilega Duvel glas er á sama hátt
hannað til að halda sínum efnismikla
froðuhaus óskemmdum á meðan neytandinn
drekkur úr glasinu og andar að sér hinni
ljúfu angan. Lögunin gerir það að
verkum að bjórinn rennur undan froðunni.
Líkt og freyðivín þá eru svo sumir bjórar eins
og t.d. sumir belgísku
Lambic bjórarnir sem
njóta sín best í háum mjóum glösum sem
kallast "fluted glass". Glös
þessi eru mjög lík háum freyðivínsglösum en
þeim er ætlað að halda lengur í gosið í
bjórnum. Fallegar gosbólurnar þurfa að
fara lengri leið upp á yfirborðið og staldra
því lengur við í drykknum. Að auki
styrkir mjó hönnunin lykt bjórsins og beinir
henni beint að vitum neytandans.
Hinir
belgísku
klausturbjórar (trappist og abbey)
eiga líka sinn stíl af glösum sem kallast
bikar eða goblet. Þessi
glös eru voldug og afar glæsileg en lögun
þeirra leyfir mikla innöndun af hinni massífu
lykt. Glösin eru vel opin og víð
þannig að gosmikill bjórinn á auðvelt með að
mynda fallegan froðuhaus og það er gott
aðgengi að sjálfum bjórnum. Bikar er
líkt og koníaksglasið...maður getur hitað
bjórinn upp í höndunum með því að halda utan
um botninn og aukið þannig lyktarmassann eða
dregið úr upphitun með því að halda um
voldugan fótinn.
Ekki eru öll bjórglös úr gleri því
til eru postulíns eða steinglös, trébikarar og
glös eða krúsir úr málmi. Slík glös
eins og t.d. málmkrúsin eða "tankard"
viðhalda hitastigi bjórsins og þar sem þessi
gerð bjórglasa er ekki gegnsæ þá er ekki
unnt að sjá tærleikann og lit bjórsins
heldur verður að treysta meira á lyktar og
bragðskynið. Hér reynir meira á að
bjórinn sé virkilega góður þar sem fallegt
útlitið er ekki a ð slá ryki í augu
neytandans. En glasalistinn er langur
og ég hef hvorki tíma né pláss til að fara
ofan í hann allan hér. Ég vildi aðeins
benda á að úrvalið er mikið og að hér er
heilmikil pæling sem liggur að baki.
Glösin eru einnig mikil stofuprýði og oft
vel vandað til verksins og tilvalið er að
safna þessum gripum. Ég reyni
t.d.að komast yfir réttu glösin fyrir þá
bjóra sem ég held mest upp á.....það er bara
svo mikil stemning í kringum þetta, að geta
boðið upp á góðan bjór í sínu rétta glasi er
ómetanlegt! Mér hefur samt
reynst erfitt að koma höndum yfir þessi glös
því auðvitað fæst ekkert hérlendis nema þá
kannski ýmsar gerðir pilsner glasa.
Hins vegar hef ég grafið upp nokkrar
heimasíður sem selja glös og læt ég hér
flakka eina ameríska.
http://www.vbdw.com/vbdw/glassware.htm
- Sjálfur hef ég ekki verslað við
þessa gaura en mér sýnist þeir vera góðir.
Sú síða sem ég hef hins vegar verslað mest
við virðist vera horfin? En nóg
um glervöruna!
|