Giraf Christmas

   
Brugghús : Albani Bryggerierne
LAND : Danmörk
STÍLL : Sterkur Lager (Bock?)
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 7.0%
FYRST SMAKKAÐ : 20/11'99 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þetta er einn af hinum svokölluðu hátíðarbjórum. Þessi er jólabjórinn í ár úr Giraf fjölskyldunni.  Venjan er að hafa jólabjóra eða vetrarbjóra örlítið sterkari en vanalega og stundum eru ýmis "jólaleg" bragðefni merkjanleg!  Þetta er vel sterkur lager og þannig séð ódýr miðað við það...maður er að fá eitthvað fyrir sinn snúð og eftir 2 -3 svona kalla fer maður aftur að trúa á jólasveininn.  Þó svo að það sé allt gott og blessað þá er bragðið ekkert til að öskra húrra yfir þó svo að miðinn komi manni í jólaskapið.  Semsagt sterkur bjór, of rammur með örlítið alkóhólbragði en í fallegum umbúðum.

 

 

Einkunn:  Sæmó!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>