|
G:
A
B
C
D
E
F
G
H
I
J
K
L
M
P
R
S
T
W
Ö
Til baka
Gerjun -
Gersveppur/Ger - Glösin - Gueuze (bjórstíll)
, Grand Cru (bjórstíll)
Gerjun :
Gerjun (fermentation) er það kallað þegar
gersveppurinn er gerjar bjórinn, þ.e.a.s.
þegar hann breytir sykrum sem hann fær úr
bygginu/hveiti (maltið) í vínanda og
koltvísýring (CO2). Án gerjunar væri
bjór og einnig vín ferkar óspennandi ekki
satt?
Gersveppuri/Ger :
Gersveppur
eða ger (yeast) er örvera sem bruggarar nota
til að gerja t.d. bjór en einnig er ger
notað í bakstur. Gersveppir lifa
allstaðar í kringum okkur og eru á sveimi í
andrúmsloftinu. Í bjór eru aðallega
notaðir tveir stofnar gers eða
Saccharomyces uvarum
sem notaður er í
lager og
svo
Saccharomyces cerevisiae
sem gerjar
ölið. Í suma bjóra eru hins
vegar ýmsar örverur í andrúmsloftinu látnar
gerja bjórinn eins og t.d.
lambic.
Glösin :
Glös eru jú auðvitað bara ílát sem menn
drekka úr hinn ýmsa mjöð! Bjórglös eru
til að ýmsum stærðum og gerðum og jafnvel úr
mismunandi efnum. Oft hefur hver bjór
sína sérstöku glasalögun sem hentar bjórnum
best. Glösin eru þá hönnuð með það að
markmiði að draga fram akkúrat það úr
bjórnum sem bruggarinn ætlaðist til. Sjá
hér nánar
um glösin.
Gueuze :
Þetta er einn af eðalbjórum Belga sem oft
hefur verið líkt við Kampavín. Þessi
bjórstíll er búinn til með því að blanda
saman gömlum þroskuðum
Lambick við ungan
Lambick . Blandan er svo látin
endurgerjast í flöskunni í lágmark eitt ár.
Gueuze er oftast í flöskum lokuðum með
vírnetuðum korktappa líkt og kampavínsflöskurnar og bjórinn er frískandi
og freyðandi. Mjög spennandi stíll sem
allir ættu að prófa ef tækifæri gefst.
Dæmi -
Cantillon Gueuze
Grand Cru :
Þessi belgíski
bjórstíll var áður bruggaður
og geymdur og svo aðeins tekinn fram við
sérstök tilefni á borð við giftingar, hátíðar og aðrar merkilegar uppákomur.
Grand Cru er rauður bjór eða rautt öl og
hann er oftast mjög alkóhólríkur.
Bjórinn er látinn þroskast lengi í
viðartunnum en við það fær hann mjólkurkennt
og dálítið súrt bragð.
|