bjorbok.net 6.5.2003
Hvar stendur þú? Taktu þessa könnun

Könnun stop könnun

ATH Brussel ferðasagan er væntanleg hér á morgun 7.mai

___________________________________________________________________________________

bjorbok.net 6.5.2003
Bjór súkkulaði og brjálaðir Belgar
nánar hér

Jæja þá er pílagrímsförinni til Brussel því miður lokið sem í stuttu máli má lýsa á þennan veg: Fáránlega mikið úrval af bjór og fáránlega stuttur tími : (
Ferðin var í alla staði frábær, ef frá eru taldir hinir símígandi rónar og hundakúkurinn sem erfitt var að forðast.  Tíminn var hins vegar allt of stuttur en þegar maður er bjórkall eða kelling eins og ég og frúin þá er bara svo erfitt að yfirgefa svona sælureit og hafa bara komist yfir brota brot af því úrvali sem  stendur manni til boða.  Smökkun tókst samt sem áður vel þó svo að fjöldi bjóra hafi verið töluvert færri en lagt var upp með í upphafi (sjá formúlu Freysa, Frosta og Benna hér). 
Brussel og reyndar Belgía öll er þekkt fyrir að dekra við meltingarfærin og tæla litla saklausa bragðlauka, maður kemst einfaldlega ekki upp með að setja ekkert ofan í sig nema bjór.  Til að byrja með er bjórinn oft á tíðum matarmikill og svo er ekki þverfótað fyrir súkkulaði og kræsingum sem lítill sælkeri bara stenst ekki.  Mallakúturinn er bara ekki nógu stór fyrir kröfuharða bragðlauka. 
Af þeim 28 bjórum sem áætlað var að smakka þá náðist ekki nema 18 en erfitt var að halda réttu ráði þar sem styrkleiki þessara kalla var oft á tíðum ógnvænlegur.  Þetta tókst þó án teljandi vandræða þó svo að strákurinn hafi verið orðinn ansi skrautlegur seinni nóttina en nóg um það.  Auk þessara 18 bjóra þá dröslaði ég heim um 11 en þar sem einn brotnaði á leiðinni (blessuð sé minning hans) þá sit ég uppi með 28 smakkaða bjóra þegar upp er staðið.  Þetta er í raun akkúrat sú tala sem við spáðum fyrir þannig að ég er nokkuð sáttur : )

Kíkið hér á nánari ferðasögu og ábendingar um "must see" staði og hér má svo finna myndasafn.


___________________________________________________________________________________

bjorbok.net 25.4.2003

Bjórbókin til Mekka

Þann merka dag 1. maí næstkomandi mun Bjórbókin leggja upp í ferð til Brussel Belgíu þar sem bjórinn drýpur af hverju strái og súkkulaðið vex á trjánum.  Tilgangur ferðarinnar er auðvitað að dekra við bragðlaukana á alla mögulega máta, sem og að komast í nágvígi við bjórinn í sinni bestu mynd en hvergi annar staðar í heiminum má finna annað eins úrval af hágæða bjór.

En þótt bjórinn sé góður í þessari höfuðborg Evrópu þá er það ekki það eina sem heillar litlar bjórbumbur því þarna á súkkulaðið að vera hvað best í heiminum og matarmenning mikil.  Auðvitað mun bjórinn samt vera í aðalhlutverki í ferðinni og mun strákurinn reyna að smakka eins mikið af honum og auðið er, en ferð þessi er Bjórbókinni líklega eins kærkomin og ferð Múslima til Mekka.

Sjá nánar hér ferðaplön og vangaveltur manna um æskilegan fjölda bjórs á klst.

___________________________________________________________________________________

bjorbok.net 20.4.2003
Páskabjórinn, hver er bestur í ár?

Að þessu sinni standa okkur Íslendingum 4 Páskabjórar til boða, 3 íslenskir og einn Dani.  Eins og oft tíðkast þá ákvað bjórbókin að bragða á þessum köllum til að skera úr um hver þeirra væri bestur á borð landsmanna. Íslenska framlagið var áberandi betra en það danska og erfitt var að skera úr um hver þeirra væri bestur. En eins og gengur og gerist þá verður að vera einn sigurvegari og eftir nokkrar vangaveltur og slatta af krúsum stóð Páskabjór Víkings uppi sem sigurveragi en Daninn Tuborg skeit á sig.
 lesa meira hér

___________________________________________________________________________________

bjorbok.net 13.4.2003
Bjórbók.net í andlitslyftingu


Að undanförnu hefur síðan verið í "viðgerð" eða andlitslyftingu.  Hún er vonandi öll mun þægilegri í sniðum og skiljanlegri.  Í Bjórlistanum er nú t.d hægt að sortera eftir frá hvaða landi bjórinn kemur eða eftir nafni bjórs.  Þetta ætti að gera líf manna á borð við Frosta (Jhonson) mun auðveldara. Á næstu dögum munu svo um 50 eða svo bjórar bætast við síðuna og brotnir linkar munu lagast.  Undir hlekknum "Dómar Gesta" hér að ofan mun svo vera hægt að koma sínum skoðunum fram en þar er nú hægt að setja inn athugasemdir um bjóra og lesa hvað aðrir hafa að segja.  ATH síðan er enn á lagfæringarstígi þannig að menn verða að sína smá þolinmæði.
 

___________________________________________________________________________________

Fréttablaðið 28.3.2003
Ódýrasti sopinn í Ríkinu

Frétt í fréttablaðinu um verðmyndun á bjórdós í Ríkinu hefur vakið athygli og fengið margan manninn til að reikna.  Þar sagði frá Faxe-dós sem kostar 159 krónur og var sögð sú ódýrasta í Ríkinu. Nú hafa dyggir viðskiptavinir ÁTVR fundið annan ódýrari.  Sá heitir DAB og kostar 138 krónur – hálfur lítri.
 

___________________________________________________________________________________

BBC news 8. janúar 2003
Bjórbumbu ‘genið’ fundið

Í grein á BBC news 8. Jan 2003 er fjallað um bjórbumbu genið svokallaða.  Svo virðist sem erfðafræðileg uppbygging okkar ráði því hve auðveldlega við söfnum á okkur hina illræmdu bjórbumbu.

Vísindamenn hafa komist að því að karlmenn með ákveðna gena byggingu hafa meiri tilhneigingu til að fá skvapaðan maga en þeir sem ekki hafa þessa gena byggingu.

Auðvitað skiptir lífstíll máli en hins vegar virðist vera að sumir karlmenn séu einfaldlega erfðafræðilega forritaðir til að mynda bjórbumbu með aldri og óhóflegum lífstíl.
Sjá nánar hér


___________________________________________________________________________________

Mogginn einhvern tíman árið 2002
Bjór er bráðhollur

Bandarískur prófessor kynnir rannsókn:

Bjór hefur jafngóð ef ekki betri áhrif á heilsuna en léttvín segir Norman D. Kaplan, prófessor við Texas-háskóla, í samtali við Aftonbladet.  Kaplan hefur rannsakað orsök og meðhöndlun við of háum blóðþrýstingi, meðal annars áhrif hóflegrar áfengisneyslu á heilsuna.  Í einni rannsókn , sem 70.000 manns tóku þátt í, komst hann að því að bjórdrykkjumenn voru með lægri blóðþrýsting en þeir sem drukku léttvín og sterkt vín. 

Niðurstaða annarrar rannsóknar sýnir að 30% minni líkur eru á því að bjórdreykkjufólk fái hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem drekka annað áfengi.

Allt er hins vegar best í hófi og næringarfræðingar vara við of mikilli drykkju.  Tveir bjórar á dag er hámarkið fyrir karlmenn og einn þegar konur eru annars vegar.


___________________________________________________________________________________

BBC news 17. Desember 2002
Drukknir fílar bana sex manns

Í grein á BBC news 17. Des 2002, segir frá drukknum fílum sem hafa traðkað sex manns til bana í Assam í Norð-austur Indlandi.

Svo virðist sem fílahjörð þessi hafi í leit sinni að mat rekist á byrgðir af heimatilbúnum hrísgrjóna bjór með fyrrgreindum afleiðingum. 

Ekki er óalgengt að fílahjarðir leiti út úr skógum Assam í leit af mat og er þetta vaxandi vandamál þar um slóðir.  Samkvæmt yfirvöldum hafa um 150 manns látið lífið á þennan hátt á síðustu 2 árum.  Talað er um að fílarnir séu nú komnir á bragðið og leiti þess vegna alltaf að hrísgrjóna bjórnum og öðru áfengi í þessum innrásum sínum í þorpin.
Sjá nánar hér

___________________________________________________________________________________

BBC news 18. Ágúst 2002
Bjórinn gerir fjöllin blá

Í grein á BBC news 18. Ágúst 2002, segir frá Skotskum vísindamönnum sem telja sig hafa fundið sannanir fyrir tilvist hinna svo kallaðra “bjór-augna” áhrifa eða “beer goggles effect”.

Með rannsókn sinni sem tók til 80 nemenda leituðust vísindamennirnir eftir að mæla hið fræga fyrirbæri þar sem fólk laðast meira að gagnstæðu kyni eftir því sem meira áfengi er neytt.

Vísindamenn þessir komust að því að karlar jafnt sem konur sem höfðu drukkið sæmilegt magn áfengis álitu andlit af gagnstæðu kyni ,sem þeim voru sýnd á ljósmyndum, um 25% fríðari en þeir sem ekkert höfðu drukkið.

Prófessor Barry Jones annar af vísindamönnunum tveimur sem framkvæmdu þessa rannsókn segir að “bjór-augna áhrifin” stafi að því að vínandinn örfi þann hluta heilans sem ákvarðar andlits hrifningu.
Sjá nánar hér
_________________________________________________________________________