|
ATHUGASEMDIR:
Faxe premium er ágætur lager með humlum í nefi.
Þessi bjór var fyrir skömmu flokkaður sem ódýrasti sopinn í
ríkinu og hann er enn á
fínu verði. Þetta er hvorki betri eða verri en annar
lager bara fínn sopi. Léttur í munn með þægilegri
beiskju sem fjarar svo út í humla. Ekki langt eftirbragð
og fer því fljótt í gegn. Í raun hef ég ekki mikið meir
um þennan bjór að segja nema bara það að þetta er ágætur lager
sem má drekka hvernig sem er hvar sem er og hvenær sem er.
Engin fyrirhöfn og fer beint í blöðruna. |