|
ATHUGASEMDIR: Þessi er nú nokkuð góður
miðað við sænskan bjór og bara með ágæta fyllingu. Þó svo að
þessi gaur beri nafnið öl þá er hér um lager að ræða en öl á
sænsku þýðir einfaldlega bjór. Þessi lyktar vel og bara
nokkuð traustur en örlítið rammur. Þessi bjór er ekki
síaður né gerilsneyddur og er því iðandi af lífi : ) Hér
er maður sko að fá eitthvað í hverjum sopa!
Ef ég ætti að mæla með sænskum bjór þá væri það sennilega
þessi...hann er skástur af þeim sem ég hef smakkað.
|