Mort Subite Faro

   
Brugghús : Brouwerij De Keersmaeker
LAND : Belgía
STÍLL : Lambic - Faro
ÁFERÐ : Fallega dökk bleikur að lit
ALKÓHÓL : 4.5 % eða þar um bil
FYRST SMAKKAÐ : 2/5'03 - á La Mort Subite Brussel
 

ATHUGASEMDIR:  Hér erum við að tala um alvöru ósvikinn Faro en það er afar sjaldséð fyrirbæri í dag.  Faro er lambic sem oft er bragðbættur með kandís, karamellu eða öðru góðgæti fyrir síðari gerjun sem á sér stað í flöskunni.  Þetta er örlítið sætur bjór en samt með þennan einkennandi súra mysukennda bakgrunn sem einkennir lambic.  Gosríkur er hann með eindæmum og gríðarlega ferskur.  Faro er mjög gamall belgískur stíll sem í árdaga var ætlaður sem svalandi þambari, þetta var og er alkóhólsnauður bjór eða aðeins rétt um 4 % og er því meira svona gosdrykkur en bjór.  Léttur í munn og endar þetta svo með sætum ljúfum keim. Þetta er án efa sá bjór sem menn verða einfaldlega að setja á óskalistann þvílík snilld!

 

Einkunn:  Eitt stórt VÁ!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>