|
F:
A
B
C
D
E F
G
H
I
J
K
L
M
P
R
S
T
W
Ö
Til baka
Faro
(bjórstíll) - Framboise (bjórstíll) -
Froðuhaus - Frúttaður - Fylling - Föl Öl
Faro :
Faró er einn af þessum dularfullu belgísku
öl bjórum sem sprottnir eru af hinum
svo kallaða
Lambick stíl. Faró er fölur eða
brúnn Lambick sem upprunalega var
framreiddur af krana á svæðunum í kringum
Brussel. Þessi bjór er gerjaður af
viltu
geri og örverum og svo endurgerjaður
með kandís sykur eða karamellu, afurðin er
svo líflegur, örlítið sætur en þó súr bjór
sem minnir ögn á vín. Gott dæmi er
Mort Subite Faro. Faró er mjög
erfitt að nálgast í dag en þessi
bjórstíll
er nánast í útrýmingarhættu og er aðeins
hægt að fá á stöku stað í Belgíu.
Framboise :
Framboise er einn af hinum hressandi
ávaxtabjórum frá Belgíu. Þetta er
belgískur
Lambick bjór sem bragðbættur er
með hindberjum , hann er snarpur, freyðandi
og hressandi og mjög lítið humlaður. Mjög
spennandi bjórstíll sem minnir heilmikið á
kampavín!
Froðuhaus :
Froðan er mikilvægur hluti bjórsins því
hún gefur frá sér ilminn sem er stór þáttur
í bragðinu! Ég persónulega vil hafa
fallega og endingagóða froðu á mínum bjór.
Froða sem snarkar í og hverfur fljótt ber
vott um að lítið malt sé í bjórnum, mikill
sykur og nánast of mikið af koltvíoxíði sem
gerir bjórinn ögn súran. Burt
séð frá því hvort froða eigi að vera á bjór
eða ekki þá á froðan að skilja eftir sig
leifar innan á hliðum glassins þegar drukkið
er en ekki hverfa bara eins og dögg fyrir
sólu!
Umdeilt er hvað sé "rétt" hæð á froðuhausnum
en það fer alveg eftir bjórstíl og hefð í
viðkomandi héraði.
Frúttaður :
Þegar ég segi "frúttaður" þá er ég að
lýsa ákveðnu bragði sem kemur fyrir í flestu
öli sérstaklega belgíska ölinu. Enska
ölið er meira svona reykt þó svo að frúttið
sé þarna líka. Þetta er sem sagt orð
sem ég bjó mér til en þýðir að einhvers
konar ávaxtakeimur er yfir bjórnum.
Ferskur og ávaxtaríkur, t.d. bananar, epli
eða bara eitthvað svona frútt! : )
Þessi keimur er sprottinn af
esterum sem
fylgja ölsveppnum
Saccharomyces cerevisiae.
Fylling :
Með fyllingu er átt við hversu mikið finnur
maður fyrir bjórnum í munninum. Er hann
"þykkur" eða bara þunnur eins og hland?
Ég nota líka skrokk (body) yfir sama
fyrirbærið eins og t.d. fullskrokka (góð
fylling), meðalskrokka og svo framvegis.
Prófið t.d. Duvel sem er mjög vel í holdum
og svo Corona sem er bara ekki neitt neitt
og þá sjáið þið vonandi hvað ég á við.
Föl öl :
Sjá
Pale Ale!
|