Eric's Red Cream Ale

   
Brugghús : Quidi Vidi Brewing Company
LAND : Nýfundnaland
STÍLL : Rjóma öl (Cream Ale)
ÁFERÐ : Koparrauður
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 26/10'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Enn einn frá Quidi Vidi! Þetta virðist vera einhver Nýfundnalandssyrpa hjá mér. Hvað um það þetta er mildur bjór með litla fyllingu, ferskur og ögn frúttaður eins og öl. Smá karamella í gangi en annars er þetta frekar bragðlítill bjór.   Eric's Red Cream Ale hljómar eitthvað svo ósköp "djúsí" ekki satt? Rjóma öl það virkar eitthvað svo spennandi á mann.   Í raun er þetta bara föl öl (pale ale) blandað saman við lager og það er ekkert svona rjóma- eitthvað við hann!  Annars sæmilegasti bjór sem var bruggaður í tilefni 1000 ára landnámi víkinga á Nýfundnalandi.

ATH - Allir þessir Quidi Vidi bjórar , 1892 Traditional Ale, Kriek og Eric' Red Cream ale fást í ÁTVR auk Northern Light (á eftir að smakka hann!).

 

Einkunn:  Hvar er rjóminn?

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>