|
ATHUGASEMDIR: Hér er enn einn frá Erdinger
sem ég hef smakkað en hinir eru
Erdinger
Weissbier og
Erdinger Champ sem eru
alveg ágætis kallar. Þessi er hins vegar frekar slakur.
Jú jú hann lofar svo sem góðu með sinn kolsvarta lit og svo
sæta maltaða ilminn en bragðið er hins vegar slakt og alls
ekki í anda hinna þekktu þýsku hveitibjóra. Erdinger er
þekkt brugghús sem að sögn framleiðir klassa bjór en hvað er
nú þetta? Já ég er greinilega ekki nógu harðnaður í
þessum bransa eða eitthvað en mér finnst þetta bara vondur
bjór. Já látið þennan endilega fram hjá ykkur fara : )
Flaskan er flott and that's about it!!!!!
|