Eichbaum
hefe weizen

   
Brugghús : Eichbaum
LAND : Þýskaland
STÍLL : Þýskur hveitibjór
ÁFERÐ : Gruggugur og ljós (hvítur)
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 16/10'99 - RVK, flugeldasýning í nýju kringlunni.
 

ATHUGASEMDIR:  Þó svo að þetta sé einn af hinum heimsfrægu þýsku hveitibjórum þá höfðaði hann ekki til mín þegar ég smakkaði hann fyrst.  Hins vegar hefur mikið vatn runnið til sjáfar síðan og bragðlaukarnir þroskast eitthvað vonandi. Ef ég smakkaði þennan í dag fengi hann líklega öðruvísi dóm...hver veit?  En þetta er semsagt eins og hann kom mér fyrir sjónir fyrst!  Alls ekki góður bjór, rammur og vont skrítið eftirbragð sem má samt þjösna í sig ísköldum og hratt.  Þetta er gruggugur andskoti og guð má vita hvað leynist í flöskunni annað en bjór.   Tilvalið að fela plástur eða sígarettustubba í svona drykk.  Býður uppá hryllingssögur!

ATH - Framlag Dodda og Lóu í bók þessa! Takk fyrir það.

 

Einkunn:  Slakur bjór!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>