| |
ATHUGASEMDIR: Hér er enn
einn hátíðarbjórinn frá
Ölgerðinni Egils Skallagrímssyni
og
eiga
þeir hrós skilið að lífga svona upp á bjórmenningu landsins.
Þessi ágæti bjór er dálítið líkur
Malt Jólabjórnum þeirra,
sætur, svartur og nauðalíkur Egils Maltinu. Fín fylling og
ágætis eftirbragð sem hangir inni. Eins og með
Jólabjórinn þá er þessi tilvalinn í blandið, "blandan mín og
blandan þín Egils Malt Páskabjór og Appelsín!" : )
Á veisluborðinu sómir þessi kall sér vel með kjötmeti hvers
konar og páskaegg gengur líka vel með. |
|