| |
ATHUGASEMDIR: Það kom skemmtilega á óvart
að rekast á þennan í vínbúðinni góðu og ég var ekki lengi að
grípa nokkra með mér. Árstíðar bjórar er mjög skemmtielg
hefð um heim allan og við höfum eitthvað verið að fikta við
það við Íslendingar. Hingað til hefur úrvalið ekki verið
voðalega gott og Viking hefur verið okkar eini jólabjór
en nú er greinilega komin kærkomin breyting á því.
Jólabjór Egils er svona ekta sælgætisbjór, hann er sætur og
mjúkur með fínan skammt af gosi og væna fyllingu. Þetta
er lager þó dökkur sé og svipar til hinna svo kölluðu
maltbjóra eða all-malt beers. Þeir sem kunna að meta
Egils Maltið góða ættu ekki að missa af þessum því þessi er
nefnilega afar keimlíkur maltinu. Prófið líka að blanda Egils
appelsín og þessum bjór saman en úr því fæst þetta fína
jólaöl. |
|