E:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Eftirbragð - Eisbock (bjórstíll) - Esterar

Eftirbragð :
Eftirbragð er einfaldlega það sem við finnum í munninum eftir að sopanum hefur verið rennt niður.  Þá finnum við oft bragð sem er ekki það sama og af sjálfum sopanum heldur oft eitthvað allt annað.  Það er ekkert betra en góður bjór sem kemur manni svo skemmtilega á óvart með ljúfu og nettu eftirbragði sem varir lengi.  Algengt er að finna dauft kaffi í eftirbragði sem og sætt maltið af hinu belgíska öli. Lager gefur oft ljúfa humla og ýmislegt annað í lokin.

Eisbock :
Þetta er lager sem er búinn til með því að frysta bock bjór að gerjun lokinni.  Þetta er í raun ansi sniðug leið til að búa til alkóhól ríkan bjór því ísinn er fjarlægður, sem er að mestu vatn, og eftir stendur sætur, þungur og sterkur alkóhólríkur bjór.  Maður ætti að geta búið til svona bjór heima í frysti eða hvað?  : )

Esterar :
Öl sveppurinn er þekktur fyrir að framleiða estera við gerjun en esterar gefa bjórnum sinn "frúttaða" karakter.  Vínber, bananar og ferskjur eru dæmi um bragð sem rekja má til estera.