Duvel

   
Brugghús : Brouwerij Moortgat
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískur sterk öl
ÁFERÐ : Gylltur og ögn gruggugur
ALKÓHÓL : 8.9%
FYRST SMAKKAÐ : Sept 2001 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR Þetta er vel ávaxtarík/frúttuð lykt og afar frískandi.  Ef við komum svo að bragðinu...VÁÁÁ þvílíkt "rusch" fyrir bragðlaukana. Svakalegt, mikið flókið bragð, vel frúttað og hressandi.  Maður bókstaflega finnur fyrir vísindunum á bak við þennan kall.  Góð fylling og mjög langt eftirbragð með ferskum og brakandi humlum og svo tekur unaðslegur djöfullegur hiti við sem breiðist um háls og bringu.  Hér er það alkóhólmagnið sem kemur við sögu.
ATH - Seinni gerjun á sér stað í flöskunni og við botninn er þunnt lag af gersvepp.  Best er því að drekka þennan kall eftir að hann hefur staðið um stund og muna svo að hella varlega og skilja eftir svona 1 cm lag í flöskunni.

 

Einkunn:  Hágæða bjór á heimsmælikvarða!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>