Duvel

   
Brugghús : Brouwerij Moortgat
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískur sterk öl
ÁFERÐ : Gylltur og ögn gruggugur
ALKÓHÓL : 8.9%
FYRST SMAKKAÐ : Sept 2001 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIRDuvel (sem þýðir djöfull) er belgískur sterk öl sem af  flestum er talinn vera einn besti bjór veraldar.  Frá mínum bæjardyrum séð á þessi bjór þau ummæli fyllilega skilið.  Nafnið er svo líka viðeigandi því hér er á ferð eitthvað sem gæti verið búið til handan okkar heims.  Þetta er líka bara djöfulli fallegur og góður bjór.  Duvel er frægur fyrir sinn fullkomna og ómótstæðilega froðuhaus en hönnun glassins hefur það einmitt að leiðarljósi að varðveita þessa þykkur, mjúku og þéttu froðu sem endist að eilífu - djöfulli flott froða sem á svo sinn þátt í að skapa hina seiðandi of flóknu lykt sem mætir manni upp úr glasinu.       -MEIRA-

 

Einkunn:  Hágæða bjór á heimsmælikvarða!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>