| |
ATHUGASEMDIR:
Hoegaarden
hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds hveitibjórum en þeir
hjá
Hoegaarden framleiða fleiri
spennandi gæðinga. Hinn forboðni ávöxtur
eða
De Verboden Vrucht kemur úr röðum Hoegaarden fjölskyldunnar og
er þetta afar alkóhólríkt öl. Af nafninu mætti ætla að
hér sé últra sterkur ávaxtabjór á ferð á borð við
kriek
og félaga en svo er ekki. Þetta er sérstakur bjór sem
borinn er fram í mjög fallegu glasi með undinn þykkan fót.
Bjórinn skartar sínu fegursta í glasinu með þykkan hvítan
haus. Lyktin minnir á einhver ber (kirsuber?) og svo er
"ölfrúttið" allsráðandi. Fullur í munn, bragðsterkur og
ögn rammur. Fjarar svo út í kaffi eða svissmokka. Þegar
líður á bjórinn verður hann vínlegri og alkóhólið kemur meira
fram! |
|