Chimay Tripel

   
Brugghús : Chimay
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískur Trappsit
ÁFERÐ : Ljós og mattur - karamella
ALKÓHÓL : 8.0% (Tripel)
FYRST SMAKKAÐ : 21/12'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR: Chimay Tripel er eitt af 3 sköpunarverkum Chimay klaustursins. Eins og hinir tveir þá er þetta trappist öl eða ósvikinn munnkabjór, hann er ljós að lit og mattur og í glasi skartar hann fínni þéttri og dúna mjúkri froðu.  Öl þetta gælir við nefið með þéttri ávaxtaríkri lykt sinni og svo fá bragðlaukarnir einnig sinn skammt, því hér er bragðmikill bjór á ferð með nettum humlum, hnetum  og svo þetta einkennandi frútt öl bragð sem skín í gegn þó dauft sé.  Góð fylling mjúkur í munn og gosríkur.  Þetta er mikill bjór með sterkan karakter en þó léttur og ekki yfirþyrmandi.  Svipar dálítið til Leffe Blonde þó græna eplið sé fjarverandi.  Bjór þessi var afar kærkomin viðbót frá Belgíu

 

Einkunn:  Massífur og öflugur bjór!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------
Fleiri frá Chimay:
Chimay Peres Trappistes - 4
Chimay Grande Réserve - 4

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>