| |
ATHUGASEMDIR: Þetta er alveg kjörinn
hveitibjór fyrir byrjendur : ) Svona hveitibjór
leikmannsins ef þannig má að orði komast! Þetta er
sem sagt hveitibjór frá þeim
Erdinger mönnum og er hann skratti mildur og "easy". Lítil lykt með vott af
sítrónu, létt fullur í munn og lítið sem ekkert eftirbragð.
Ögn sítruskeimur skín í gegnum allt saman. Mjög svalandi
bjór og afar frískandi, tilvalinn í hinum miklu sumarhitum
Íslands hehe.
Ég held að það væri sniðugt að byrja á þessum ef menn vilja
prófa sinn fyrsta hveitibjór. Ölfaktorinn er líka í
lágmarki sem er fínt fyrir þá sem hafa bara drukkið lager.
Menn geta svo fært sig úr þessum upp í t.d.
Erdinger
Weissbier eða þann sem er hér næstur í röðinni. |
|