Carlsberg Sort Guld

   
Brugghús : Carlsberg
LAND : Danmörk
STÍLL : Ljós lager
ÁFERÐ : Gylltur og tær
ALKÓHÓL : 5.8%
FYRST SMAKKAÐ : 8/12'02
 

ATHUGASEMDIRNafnið bendir til þess að þessi bjór sé dökkur en svo er alls ekki.  Þetta er hefðbundinn gylltur lager og akkúrat ekkert dökkt við hann fyrir utan umbúðirnar.  Í nebbaling má finna þessa venjulegu lagerlykt, létta humla og þægilegt malt rétt eins og venjulegi Carlsberginn.  Svarta gullið bragðast líka töluvert líkt og Carlsberginn sem við eigum að venjast nema hvað bragðið er aðeins meira.  Þessi bjór er líka töluvert alkóhólríkari en græni kallinn og því tilvalinn fyrir þá sem vilja Carlsberg með smá fútti í.  Aukið alkóhólmagn kemur þó ekki niður á bragðinu því alkóhól er þar fjarverandi með öllu.  Sem sagt fínn Carl sem unnt er að mæla með.

 

Einkunn:  Góður lager!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------
Fleiri frá Carlsberg:

Carlsberg Dark - 5
Carlsberg - 4
Carsberg 47 - 3
Carl's Jul - 4
Carlsberg Special - 3.5

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>