Carlsberg

   
Brugghús : Carslberg
LAND : Danmörk
STÍLL : Ljós lager
ÁFERÐ : Gylltur og tær
ALKÓHÓL : 4.6%
FYRST SMAKKAÐ : Einhvern tíman í fornöld
 

ATHUGASEMDIR: Það var nú kominn tíma að meta þennan bjór því þetta hefur verið einn af mínum uppáhalds lagerum í gegnum tíðina.  Það þarf vart að kynna þennan kall því allir hafa nú einhvern tíman í tíðinni bragðað á kauða.  Þetta er fallegur og smart lager sem kann vel við sig í fallegu glerglasi.  Það má líka drekka þennan af stút við grillið eða hvar sem er.  Ylmar vel með áberandi humlum og lítið af malti og pínu málmkeimur með. Í munni er þetta þægilegur bjór, snarpur án þess að vera rammur og léttur án þess að vera þunnur.  Fylling er sæmileg og eftirbragð langt og notalegt.  Þennan gæti ég drukkið endalaust og hann passar vel með flestum elduðum mat.  Súkkulaði og ostar eiga þó ekki vel við.

 

Einkunn:  Elegant lager!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------
Fleiri frá Carlsberg:

Carlsberg Dark - 5
Carlsberg Sort Guld - 4
Carsberg 47 - 3
Carl's Jul - 4
Carlsberg Special - 3.5
 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>