| |
ATHUGASEMDIR: Carlsberg
hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds lagerum og
því
var afar ljúft að fá að kynnast öðrum fjölskyldumeðlimum
Carlsberg hér í Köben. Þegar þetta er skrifað þá er Carl's
Jul allsráðandi en einnig má sjá Tuborg jólabjórnum bregða
fyrir. Carl's Jul er sennilega allra besti jólabjór sem
ég hef bragðað af lager stíl þegar þetta er skrifað, og það
ætti að prófa að flytja þennan inn til Íslands .
Þegar flaskan er opnuð má nánast heyra
bjölluhljóm svo mikil er jólastemningin í þessum drykk.
Sætur ilmur stígur upp úr glasinu með malti, pínu karamellu
eða kandís og svo humlar í bakgrunni. Í munni er
hér sælgæti á ferð og bragðlaukarnir syngja af gleði.
Mjúkur og mikill lager með sætum karamellu keim, kandís og
kanil og svo þægilegur biturleiki í restina. |
|