Carlsberg Dark
Ølvalg 2003 vi
nder

   
Brugghús : Carslberg Dark
LAND : Danmörk
STÍLL : Dökkur lager
ÁFERÐ : Rauður
ALKÓHÓL : 5.6%
FYRST SMAKKAÐ : 09.08.2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR: Það hefur nú gengið á ýmsu að undanförnu því nú hef ég tekið upp rætur á Íslandi og flutt til Danmerkur til að vera nær bjórnum.  Þessi bjór var fyrsti bjórinn í nýjum heimi en Carlsberg Dark er nýjasti bjórinn frá Carlsberg brugghúsinu.  Á hverju ári kemur Carlsberg með nokkra nýja bjóra á markað og þjóðin tekur svo þátt í að velja hver þeirra er bestur.  Ølvalg kallast þessi uppákoma en Carlsberg Dark er sigurvegari ølvalg 2003.  Þegar maður smakkar þennan kauða þá skilur maður svo sem afhverju því þetta er frábær lager.  Hann er rauður í glasi með netta brúna froðu.  Bragðið er kryddað, sérstætt og óvenju frúttað af lager að vera.  Bjórinn er sætur, maltaður og svo má greina ögn vanillu svei mér þá!  Smá dökkt bragð eða pínu ristað.  Frábært eftirbragð og frábær bjór. Ég held að allir geti verið sáttir að þessi hafi nú fest sig í sessi í bjórfjölskyldu Carlsbergs.

 

Einkunn:  Konfektmoli!


----------------------------------
Fleiri frá Carlsberg:

Carlsberg - 4
Carlsberg Sort Guld - 4
Carsberg 47 - 3
Carl's Jul - 4
Carlsberg Special - 3.5
 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>