Gueuze 100% Lambic Bio
 

Cantillon Gueuze

   
Brugghús : Brasserie Cantillon
LAND : Belgía
STÍLL : Lambic - gueuze
ÁFERÐ : Gulur og gruggugur
ALKÓHÓL : 5.0 %
FYRST SMAKKAÐ : 3/5'03 - Cantillon brugghúsið
 

ATHUGASEMDIR: Fyrst þegar ég smakkaði þennan kall 12/7'02 í London þá varð ég ekki fyrir jákvæðum hrifum.  Nú þegar ég smakka þennan bjór þá er hann hrein unun að hafa í munni og enn skemmtilegri í maga! Sem sagt mjög góður.  Hmmm hvað er hér á ferð kann einhver að spyrja en svarið einfalt.  Hjá Cantillon er notast við örverur/ger úr andrúmsloftinu við gerjunina og sú samsetning getur verið breytileg ár frá ári.  Afurðin er því aldrei eins og menn geta fengið misgóðan árgang ef svo má orða það.  Þessi árgangur var bara einfaldlega mun betri.  Þetta er afar gosríkur bjór og minnir helst á freyðivín, glæsilegur og elegant með mikið greipaldin og mysu og svo pínu þurr.  Afskaplega ferskur og skemmtilegur bjór. Algjört möst að smakka!!!

 

Einkunn:  Snilld!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------
Fleiri frá Cantillon:
Cantillon Vigneronne - 5
Cantillon Fou' Foune - 4
Cantillon Kriek - 4.5

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>