Cantillon Gueuze

   
Brugghús : Brasserie Cantillon
LAND : Belgía
STÍLL : Lambic - gueuze
ÁFERÐ : Gulur og gruggugur
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 12/7'02 - London
 

ATHUGASEMDIR Úff þessi er sko spennandi, hér erum við að tala um einn elsta bjórstíl sem fáanlegur er í dag þ.e.a.s. lambic Gueuze er öl sem gerður er með því að blanda saman gömlum og ungum lambic.  Cantillon Gueuze er gerður úr 1. árs, tveggja og þriggja ára lambic.  Flöskunni er lokað með korktappa og svo er "tinpappír" vafið utanum líkt og á vínflöskum.  Þegar tappanum er smellt af ryður sér helmikið gos leið út úr flöskunni og hún freyðir.  Lyktin er voðalega spes, eins konar fúkka-mysulykt en afar fersk og maður fær á tilfinningunni að hér sé forn bjór á ferð!  Í munni er hann mjög kitlandi , vel sýrður og með sítrónubragði.  Mjög þurr bjór en svalandi og ferskur eins og hveitibjórum sæmir. Lítil fylling og eftirbragð skammt og minnir á kampavín.  Persónulega finnst mér þetta ekki góður bjór eftir eina smökkun en ég mæli þó með því að menn prófi þennan fornbjór komist þeir í hann.

 

Einkunn:  Forn og furðulegur! Mjög spes!

ATH sjá einnig hér!!!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>