Budweiser

   
Brugghús : Anheuser-Busch Companies, Inc.
LAND : Bandaríkin
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Gulur
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST METINN : 23/4'00 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIRHér kemur bjór sem hefur valdið miklu fjaðrafoki í heimi bjórsins.  Til að byrja með þá er það nafnið en nafn þetta kemur upprunalega frá  tékklandi og þýðir "bjór konungana".  Í Budweis (þýska nafnið á hinum tékkneska bæ) í Tékklandi hefur verið bruggaður bjór sem hefur kallast Budweiser bjór löngu áður en hið bandaríska fyrirtæki (A-B) kom til sögunar með sinn Budweiser.  Undirtitillin "king of beers" á þeim ameríska eykur svo enn á ruglinginn.  En það eru sem sagt málaferli og höfundarréttarmál gangi milli A-B og hins tékkneska Budejovicky Pivovar sem bruggar Budvar Budweiser.  Hvað bjórinn varðar er athyglisvert hve óskaplega slæma dóma hann fær venjulega.  "Piss", "sull", "litað vatn" ofl eru lýsingarorð sem maður rekur sig iðulega á í sambandi við þennan bjór.  Í mínum augum er þetta ágætur lager, alls engin snilld og stendur engan vegin undir nafni sem konungur bjórsins.  Hins vegar þegar ég var á ferð um USA á sínum tíma þá bókstaflega lifði ég á þessum bjór og gæti það haft sín áhrif á jákvæðan dóm minn nú. Verð að endurmeta þennan!

 

Einkunn:  Góð markaðsetning!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>