| |
ATHUGASEMDIR: Hér er á ferðinni afar
bragðmikill og ljúffengur ávaxtabjór frá Bandaríkjunum en eins
og hinir belgísku ávaxtabjórar þá er grunnurinn hveitibjór sem
bættur er berjum. Blackberry Wheat er viðbættur brómberjum ef
ég hef það rétt og er AFAR frískandi og ferskur bjór með mjög
áberandi ávaxtabragði. Ölsveppurinn er vel greinilegur í
þessum gosmikla, fullskrokka hveitibjór og svo kemur maltið
létt í gegn. Fínt brómberja eftirbragð. Lítil
froða en það er svo sem ekki aðalatriðið.

ATH - Afar fallegur miðinn kemur manni í réttu
stemninguna fyrir þennan bjór! |
|