|
Alla
bjórstíla má flokka annað hvort sem
öl eða
lager eftir því
hvaða ger er notað sem og hitastig og
gerjunartíma. Úrvalið er gríðarlegt og
hér
verður aðeins tiplað á stóru og farið í
nokkra af helstu bjórstílum veraldar svona
rétt til að skoða toppinn af ísjakanum.
Íslensku þýðingarnar hér að neðan eru þau nöfn sem ég hef
notað yfir þessa bjórstíla og eru alls ekki
löggiltar skjalaþýðingar : )
Abbaye Öl -
Klausturbjórar :
Abbaye þýðir klaustur og er notað yfir
belgískan bjórstíl sem bruggaður var í
klaustrum í gamla daga til að hjálpa
munkunum í gegnum föstuna. Í dag eru ekki
allir klausturbjórar ekta klausturbjórar,
þ.e.a.s. bjór sem er bruggaður innan veggja
raunverulegs klausturs og af raunverulegum
munkum. Til að greina á milli þessara
ekta og óekta klausturbjóra er orðið
Trappist sett á hina raunverulegu
klausturbjóra. Þetta eru þó allt
klausturbjórar í þeim skilningi að þeir eru
bruggaðir á sama hátt og þeir eru yfirleitt
mjög sterkir (hvað alkóhól varðar),
bragðmiklir, stundum sætir og oft dálítið frúttaðir.
Klausturbjórar er nær eingöngu framleiddir í
Belgíu en þó eru undantekningar eins og t.d.
Trappist bjórinn frá Hollandi (Koningshoeven).
Í dag eru aðeins til 6 brugghús/klaustur í
heiminum sem brugga hina raunverulegu
klausturbjóra (Trappist) , 5 í Belgíu og svo
eitt í Hollandi.
Dæmi um klausturbjóra
:
Leffe Blond,
Leffe Bruin,
Chimay
Altbier - Gamli
bjór :
Alt þýðir gamall á þýsku og er notað yfir
bjórstíl (t.d. Dusseldorfer alt) í
Þýskalandi sem er bruggaður með gömlu
aðferðinni þ.e.a.s. eins og bjórinn var
bruggaður fyrir 19. öld. Alt bjór er
bruggaður með öl-sveppnum
Saccharomyces
cerevisiae og er því Öl. Bjórinn var geymdur
í ísköldum hellum í langan tíma að gerjun
lokinni til að draga úr hinum frúttaða
eiginleika ölsveppsins. Þetta eru oft
rammir bjórar með ríkt humalbragð.
Barley Wine - Vín
bjór:
Þetta er breskur bjórstíll (British strong
ale) sem tilheyrir Öl-fjölskyldunni og er
afar sterkur og svipar að því leiti til
víns. Alkóhólmagnið getur verið frá 6
og upp í 12 % þannig að menn eru að fá
eitthvað fyrir sinn snúð hér. Oftast
er bjórinn rauðleitur eða koparlitaður (amber).
Barley Wine eru góðir bjórar til geymslu og
batna með aldrinum.
Bitter - Bitur :
Bitter eða Bitur eins og ég vil kalla hann
er vel humlaður en þó ekki of rammur eins og
ætla mætti af nafninu . Þessi
enski öl er ekki gosmikill bjór. Brons
og allt upp í dökk kopar rauður að lit!
Bock :
Upprunalega voru Bock bjórar hið fljótandi
brauð hina fastandi munka (ekki slæmt að
fasta í þá daga). Bock bjórar sem
upprunalega koma frá Þýskalandi eru afar
alkóhólríkir, maltaðir og oftast dökkir lager
bjórar sem bruggaðir voru á haustin eða
veturna og svo drukknir á vorin.
Cream Ale - Rjóma
Öl :
Þessi stíll hljómar rosalega djúsí ekki
satt? Hins vegar er í raun ekkert sem minnir
á rjóma í þessum stíl og skil ég ekki alveg
hvaðan nafnið kemur. Rjóma öl er eins
og nafnið gefur til kinna bruggaður með Öl
svepp en svo er bjórinn látinn eldast í
kulda líkt og lager. Stundum er jafnvel
lager blandaður saman við ölið.
Útkoman er svo mildur, gylltur,
full skrokka föl öl sem upprunninn er frá
Ameríku.
Dæmi um Cream Ale :
Reds Eric's Cream Ale
Dortmunder Export -
Dortmúndari :
Hér er á ferð mjög vinsæll bjórstíll sem
upprunalega var bruggaður á svæðinu í
kringum borgina Dortmund í Þýskalandi.
Dortmúndarinn er oftast fullskrokka eðal
lager sem er einhvers staðar á milli þurra
þýska pilsnersins og hinum sætari maltaða
Munchen helles bjór. Viðskeytið "export"
þýðir ekki að þetta sé útflutt heldur bendir
það til þess að þetta sé eðal lager eða
premium lager.
Eisbock - Ísbokk :
Þetta er lager sem er búinn til með því
að frysta
bock bjór að gerjun lokinni.
Þetta er í raun ansi sniðug leið til að búa
til alkóhól ríkan bjór því ísinn er
fjarlægður, sem er að mestu vatn, og eftir
stendur mun sætari, þyngri og sterkur
alkóhól ríkur bjór. Maður ætti að geta
búið til svona bjór heima í frysti eða hvað?
: )
Faro - Faró :
Faró er einn af þessum dularfullu belgísku
öl bjórum sem sprottnir eru af hinum
svo kallaða
Lambick stíl. Faró er fölur eða
brúnn
Lambick sem upprunalega var
framreiddur af krana á svæðunum í kringum
Brussel. Þessi bjór er gerjaður af
viltu geri og örverum og svo endurgerjaður
með kandís sykur eða karamellu, afurðin er
svo líflegur, örlítið sætur en þó súr bjór
sem minnir ögn á vín. Gott dæmi er
Frank Boon Pertotale. Faró er mjög
erfitt að nálgast í dag en þessi bjórstíll
er nánast í útrýmingarhættu og er aðeins
hægt að fá í Belgíu.
Framboise :
Framboise er einn af hinum hressandi
ávaxtabjórum frá Belgíu. Þetta er
belgískur
Lambick bjór sem bragðbættur er
með hindberjum , hann er snarpur, freyðandi
og hressandi og mjög lítið humlaður. Mjög
spennandi bjórstíll!
Grand Cru :
Þessi belgíski bjórstíll var áður bruggaður
og geymdur og svo aðeins tekinn fram við
sérstök tilefni á borð við giftingar, þorps
hátíðar og aðrar merkilegar uppákomur.
Grand Cru er rauður bjór eða rautt öl og
hann er oftast mjög alkóhólríkur.
Bjórinn er látinn þroskast lengi í
viðartunnum en við það fær hann mjólkurkennt
og dálítið súrt bragð.
Gueuze :
Þetta er einn af eðalbjórum Belga sem oft
hefur verið líkt við Kampavín. Þessi
bjórstíll er búinn til með því að blanda
saman gömlum þroskuðum
Lambick við ungan
Lambick . Blandan er svo látin
endurgerjast í flöskunni í lágmark eitt ár.
Gueuze er oftast í flöskum lokuðum með
vírnetuðum korktappa líkt og kampavínsflöskurnar og bjórinn er frískandi
og freyðandi. Mjög spennandi stíll sem
allir ættu að prófa ef tækifæri gefst.
Dæmi
-
Cantillon Gueuze
Indian Pale ale -
Indverskur föl öl :
Þetta er eins konar afbrygði af enskum föl
öl sem er afar vel humlaður. Í raun er
þetta enskur öl sem fluttur var til
nýlendanna í Indlandi í gamla daga.
Hátt humal magnið og ríkulegt
alkóhólinnihald gerði það að verkum að
bjórinn hélt ferskleika sínum eftir langar
siglingar frá Englandi til Indlands.
Þessi stíll var afar vinsæll á meðal breskra
hermanna í Indlandi.
Kölsch - kölski :
Kölski er gamall þýskur bjórstíll upprunninn
frá Köln fyrir tíma lagersins. Þetta
er ljós og stundum gruggugur öl með léttum
humlum og dálítið þurr. Frekar
alkóhólríkur og örlítið mjólkurkenndur.
Kriek -
kirsuberjabjór :
Þetta er enn eitt belgíska undrið sem
gerður er úr
Lambic sem bragðbættur er með
kirsuberjum. Berin eru marin og sett
saman við bjórinn í síðari gerjun.
Afar frískandi bjór!
Lambic - villibjór
:
Þetta er elsti bjórstíll veraldar og er sá
bjórstíll sem kemst næst hinum forna
upprunalega bjór. Lambic er belgískur
hveitibjór sem gerjaður er með villtu geri
og örverum úr andrúmsloftinu. Gerjunin fer
fram í stórum eikartunnum sem geymdar eru í
drungalegum köldum kjöllurum. Lambic
verður að innihalda lágmark 30% hveiti til
að kallast ekta og er hveitið venjulega
ómaltað. Bjórinn er gruggugur, gulur,
létt humlaður, froðukenndur og örlítið súr .
Lambic er svo oft bragðbættur með ýmsum
ávöxtum svo sem ferskjum (peche),
kirsuberjum (kriek) og hindberjum (framboise).
Vilji maður fá fortíð í flösku þá verður
maður að smakka þennan.
Marzenbier - Mars
bjór :
Þýskur hátíðarbjór sem vinsæll er á hinum
fræga októberfest í Þýskalandi. Þetta er
mjúkur, maltaður koparlitaður lager sem
bruggaður er í mars og látinn eldast fram í
september lok eða byrjun október.
Þýskir og tékkneskir humlar í mjög góðu
jafnvægi.
Munchener Dunkel :
Þessi dökki lager er sá lager sem
fyrst kom til sögunnar og markaði upphafið
að algjörlega nýrri bjór fjölskyldu.
Dunkelinn fæddist í Spaten-brugghúsinu
í Munchen í Þýskalandi um miðja 19. öld og
vakti strax heimsathygli. Bjórinn er
nokkuð maltaður bæði hvað varðar bragð og
lykt en samt í góðu jafnvægi með þýskum
humlum. Lítið rammur og léttur bjór.
Oud Bruin - Gamli
brúnn :
Gamli brúnn er dökkrauður og stundum
svartur belgískur öl sem kemur frá flæmsku
héruðum í Belgíu og sérstaklega í kringum
bæinn Oudenaarde. Bjór þessi er
frumgerjaður í langan tíma og svo í enn
lengri tíma í síðari gerjun og þá oft í
viðar tunnum þar sem sýrandi bakteríur
komast í hann. Afraksturinn er vel
þroskaður, örlítið súr og sýrður bjór með
nokkuð vínlegan karakter. Í suma gamla
brún er bætt út í kirsuberjum eða hindberjum
og heita þeir þá
Kriek og
Frambosen. Flöskurnar eru fallega vafðar inn í
eins konar smjörpappír!
Pale Ale - Föl Öl :
Þessi öl var fyrst bruggaður í Burton-on-Trent
í Englandi á 18. öld og var víða mjög
vinsæll bjórstíll. Þó nafnið bendi
til þess að bjórinn sé ljós þá er hann í
raun frekar dökkur eða brons / koparlitaður,
hins vegar er hann mun ljósari en hinir
svörtu og dökkbrúnu
Portarar og
Státar.
Föl ölið er vel humlaður , nokkuð rammur og
fullskrokka bjór.
Pilsner :
Pilsner er án efa frægasti og vinsælasti
bjórstíll heimsins uppruninn frá Pilsen í
Bæheimi 1842. Þessi tékkneski
bjórstíll tók við af hinum dökka Munchen
lager og hefur allar götur síðan verið
fyrirmynd annarra lager bruggara í heiminum.
Orðið pilsner þýðir í raun sama og ljós
lager, en stundum ruglar þetta menn í
ríminu. "Pilsner" ætti maður kannski bara að
nota um ljósan lager sem er bruggaður á sama
hátt og sá upprunalegi
Dæmi um pilsner er
Pilsner Urquell
Porter - Portari :
Portari er dökkur og frekar sterkur öl
sem upprunalega varð til þegar menn blönduðu
saman ódýrum óþroskuðum bjór (mildum brúnum
bjór) við dýrari eldri bjór. Portarinn
er með kryddaðan súkkulaði karakter og
gerður úr enskum humlum. Lakkrís rót,
súkkulaði malt, svart malt, og ýmislegt
fleira eru dæmi um hráefni sem notuð hafa
verið í bruggun portara í gegnum tíðina.
Reyk bjór /
Rauchbier :
Þessi þýski bjórstíll varð frægur í
Bamberg í norður Bæheimi á árum áður.
Bjór þessi er þýskur lager sem bruggaður var
á svæðinu en "reyk" viðurnefnið kom vegna
þess að maltið sem notað var í bjórinn var
þurrkað yfir opnum eldi og fékk því reyktan
karakter fyrir vikið.
Saison -
Árstíðarbjór :
Saison (árstíðar bjór) er belgískur
bjórstíll eða sumar öl sem ættaður er frá
frönsku mælandi suðurhluta Belgíu. Bjór
þessi var venjulega bruggaður á veturna eða
vorin og svo geymdur fram á sumar og
drukkinn yfir sumarmánuðina.
Saison
bjórar þurftu að vera frekar humlaðir
til að haldast ferskir yfir sumarið en þó
ekki of rammir svo þeir væru svalandi á
heitum sumardegi. Þessir
bjórar eru líka þekktir fyrir að vera afar
gosmiklir en gosið safnast fyrir í flöskunni
yfir geymslutímann. Oft er svo ýmsum kryddum
eða jurtum bætt við til að lífga bjórinn
aðeins við. Nú á tímum er afar fá
brugghús sem brugga þessa bjór perlu og má
segja að stíll þessi sé að deyja út.
Stout - Stát :
Þessi afkomandi
portara er oftast svart eða
dökkbrúnt öl sem inniheldur hátt hlutfall
ristaðs korns. Státar eru oft sætir og
mjög maltaðir en einnig eru þeir oft ram mir
og þurrir. Þetta eru mjúkir bjórar,
stundum mjólkurkenndir og oftast með fína
mjúka froðu. Algengt er að finna reykt
bragð, kaffi og stundum súkkulaði.
Dæmi um sætan stát er
Samuel Smith's Outmeal
Stout.
Dæmi um þurran stát er
Guinness og
Murphy's Irish Stout
|