Belle-Vue Kriek

   
Brugghús : Belle-Vue Brewery
LAND : Belgía
STÍLL : Lambic ávaxtabjór (kirsuber)
ÁFERÐ : Vínrauður eins og rauðvín og glær
ALKÓHÓL : 5.2 %
FYRST SMAKKAÐ : 2/5'03 -ChaoChow Palace Brussel
 

ATHUGASEMDIRBara það að sjá þjóninn koma með þennan bjór er nóg til að fá blóðið til að renna.  Í glasi er þetta þvílíkt fallegur bjór og freystandi.  Fallega tær vínrauður með mikla ljós ljós bleika froðu. Belle-Vue Kriek er einn af þessum alvöru kriek bjórum sem byggðir eru á lambic.  Þetta er afar freyðandi og mildur bjór með kirsuberja blæ sem skapar einstakan ferskleika.  Ögn sætur er hann en alls ekki væminn og maður finnur pínu lambic mysu keim í gegn.  Þvílíkur þambari hér á ferð og stór stór hættulegur.  Virkar líka afskaplega vel sem afréttari daginn eftir jamm.

 

Einkunn:  Fullkominn!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>