1. Þú ert að hlaupa á eftir strætó en rennur á hausinn á hálku hvað gerir þú?

hrósa happi yfir að hafa ekki brotið neitt né skemmt fötin mín
sprett á fætur og vona að engin hafi tekið eftir þessu
tek ekki strætó, strætó er fyrir aumingja
brölti tignarlega á fætur og bera afturendann framan í nærstadda

2. Með einni rjúkandi flatri er best að fá...

hvað er ein flöt?
kalda mjólk
einn spriklandi og ferskan lager
kók

3. Ef einhver hellir óvart yfir þig bjórnum þínum hvernig bregst þú við?

hleyp grátandi heim og segi mömmu
sendi viðkomandi yfir móðuna miklu með einu góðu í smettið
er miður mín yfir því að sóa svona góðum drykk og reyni að ná sem mestu í glasið aftur
stend upp með bros á vör og fyrirgef viðkomandi

4. Í rúminu ertu...

villidýr sem skilar sínu og hefur gott úthald
eins og tyggjó klessa sem bíður þess að vera tekin
grískur Guð, blíður og góður
sprækur og ferskur og með sæmilegt úthald

5. Þú mætir mannætum í Amazon hvernig bregðast þær við þér?

þefa af þér en láta þig svo vera
snæða þig sem snakk með bjórnum síðar um kvöldið
þær telja þig vera Guð þeirra kominn til að leiðbeina þeim
þær flýja af hólmi eftir að þú hefur gleypt félaga þeirra með strápilsi og öllu

6. Hvað eftirfarandi á best við um þig?

stór og feitur
fitt og fallegur
safaríkur og ferskur
þunnur og fölur

7. Í samkvæmum...

drekk ég pínu of mikið og fer strax á trúnó inn á baði
er ég fljótur að vinna hylli gagnstæða kynsins
drekk ég manna mest og fer í vígaham
finn ég mér rólegt horn, læt lítið fyrir mér fara og raula lagið úr The Crying Game með sjálfum mér

8. Þú stendur nakinn inn á baði og skoðar þig í speglinum, hvað er það sem við sjáum?

hrörlegan horaðan og fölan nánast gegnsæan líkama
stæltan og brúnan líkama
líkama sem mikið er af..loðinn og feitur
venjulegan líkama, ekki of brúnan og ekki of horaðan með pínu bjórbumbu þó sem er bara sætt

9. Ef þú værir bjór, í hvernig glasi vildirðu helst vera ?

litlu glasi á fæti með koníaks lögun og það þarf að vera úr gleri svo fegurð mín fái að njóta sín
glasið þarf að vera á fæti, stórt og mikið og ég þarf að geta notið mín að fullu í því
kaffibolli, plastmál, gler, hverjum er ekki sama?
bara einhverju fallegu glasi þar sem ég sést vel