B:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Barley Wine (bjórstíll) - Bitter (bjórstíll) - Bjórstílarnir - Bock (bjórstíll)  - Bruggun - Bygg (barley)

Barley Wine :
Þetta er breskur bjórstíll (British strong ale) sem tilheyrir Öl-fjölskyldunni og er afar sterkur og svipar að því leiti til víns.  Alkóhólmagnið getur verið frá 6 og upp í 12 % þannig að menn eru að fá eitthvað fyrir sinn snúð hér.  Oftast er bjórinn rauðleitur eða koparlitaður (amber).  Barley Wine eru góðir bjórar til geymslu og batna með aldrinum.

Bitter :
Bitter eða Bitur eins og ég vil kalla hann er vel humlaður en þó ekki of rammur eins og ætla mætti  af nafninu .  Þessi enski öl er ekki gosmikill bjór.  Brons og allt upp í dökk kopar rauður að lit!

Bjórstílarnir :
Til er aragrúi af mismunandi bjórstílum í heiminum í dag og ætla ég að nefna þá helstu hér eða svona því sem næst : ) 

Bock :
Upprunalega voru Bock bjórar hið fljótandi brauð hina fastandi munka (ekki slæmt að fasta í þá daga).  Bock bjórar sem upprunalega koma frá Þýskalandi eru afar alkóhólríkir, maltaðir og dökkir lager bjórar sem bruggaðir voru á haustin eða veturna og svo drukknir á vorin.

Bruggun :
Bruggun (sjá nánar hér) er það ferli kallað þar sem vatn, maltað bygg, humlar og gersveppur breytist í áfengan drykk sem við köllum bjór.  Til að byrja með þarf að brjóta flókna sterkjuna í bygginu niður í einfaldari sykrur sem gersveppurinn nýtir sér síðar.  Byggið er svo þurrkað og kallast þá malt og er þá tilbúið í bruggunina.   Maltið er svo sprengt og heitu vatni er bætt saman við og kallast þetta mesking en á þessu stigi er síðustu sterkjunni breytt í sykrur.  Að meskingu lokinni tekur við suða þar sem humli er bætt út í.  Humallinn hefur sótthreinsandi áhrif en hlutverk hans er einnig að gefa bjórnum hressandi og snarpt bragð og vega upp á móti sætu maltinu. Þegar þessari suðu er lokið hefst gerjunin þar sem gersveppurinn gæðir sér á maltinu og myndar um leið alkóhól og koltvíoxíð.  Bjórnum er svo tappað á flöskur og hann svo seldur.  Oft er bætt út í bjórinn meira af koltvíoxíði fyrir átöppun.

Bygg :
Bygg er korntegund sem notuð er við bruggun sem uppspretta sykurs fyrir gersveppinn. Bygginu er breytt í malt áður en það fer í bruggun.