| |
ATHUGASEMDIR: Viva Italia! OK hér er
sem sagt lager frá Ítölum og
ég þori að veðja
að hann passi vel með pasta og lasagne og svo ég tali nú ekki
um pizzu. Hehehe ef ég nota myndlíkingu um þennan spræka
ítala þá væri það eitthvað á þessa leið: Þetta er þéttvaxinn
mikill maður með mikinn karakter, hann er alls ekki "agressífur"
heldur frekar blíður og ljúfur. Þessi ítalski gutti
hefur þrusu úthald , er félagslyndur og fær góða athygli
nærstaddra. Já svo er bara spurning hvort þetta sé góður
dómur eða ekki : ) Alla vega þetta er stolt þeirra
Peroni manna en þeir
bjóða upp á furðulega mikið úrval af bjór.
|
|