Amstel Light

   
Brugghús : Heineken Nederland
LAND : Holland
STÍLL : Bjórlíki (léttur bjór)
ÁFERÐ : Ljósgylltur
ALKÓHÓL : 3.5 %
FYRST SMAKKAÐ : Reykjavík 2003
 

ATHUGASEMDIR:  Já þetta er minn fyrsti light bjór eða bjórlíki eins og ég kýs að kalla það.  Ég lét til leiðast að smakka þennan bjór eftir samtal við Adda hjá RJC.  Ég komst þá að því að þetta bjórlíki er furðulega bragðgott miðað við að vera light bjór.  Ég er ekki að segja að þetta sé góður BJÓR sem slíkur heldur er þetta góður LIGHT BJÓR fyrir þá sem vilja geta fengið sér einn eða tvo en samt hugsað um línurnar.  Amstel Light er nefnilgea ótrúlega kaloríusnauður eða um 35% færri kaloríur en í venjulegum lager.  "Bjórinn" er svalandi og með sæmó skrokk með nettum humlum.  Fínn heilsudrykkur hehehe ;)

 

Einkunn:  Léttur og lipur

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>