Albani Jule Bryg

   
Brugghús : Albani Bryggerierne
LAND : Danmörk
STÍLL : Lager jólabjór
ÁFERÐ : Koparlitaður
ALKÓHÓL : 7.0%
FYRST SMAKKAÐ : 1/12'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi jólabjór kemur frá frændum okkar Dönum og er bragðsterkur mjög.  Fyrir minn smekk þá er hann heldur rammur með áberandi sterka humla.  Humlar eru líka ríkjandi í lyktinni en epli koma þar líka við sögu.  Hæfilegt gos og fín fylling og svo ekkert eftirbragð.  Það góða við þennan er 7% alkóhólmagnið en það gefur góðan hita í mallakút og bræðir stærstu grílukertin af frosnum nebbum.  Fínt á köldu vetrarkvöldi í jólagjafaleitinni.

 

 

Einkunn:  Of rammur!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>