Abro River III

   
Brugghús : Abro
LAND : Svíþjóð
STÍLL : Pilsner/lager
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 25/3'00 - Stokkhólm
 

ATHUGASEMDIR:  Svíar hafa nú aldrei verið neitt þekktir fyrir snilli á sviði bjórbruggunar og ég held ég skilji nú afhverju.  Þeir fáu bjórar sem ég smakkaði úti í Svíþjóð voru nefnilega frekar slakir og er þessi engin undantekning.  Ef einhver hefur smakkað Pripps Bla léttbjórinn sem fæst hér á Íslandi í búðum þá mætti nota hann til viðmiðunar.  Þessir bjórar eru nefnilega frekar líkir Pripps léttir og þunnir.  River lyktar samt vel og mikið en hann er afar ómerkilegur á bragðið. Þunnur, léttur og slappur og með ekkert eftirbragð, sopinn bara hverfur uppí manni.  Mæli engan vegin með þessum!
 

 

Einkunn:  Þunnur!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>