|
A:
A
B
C
D
E
F
G
H
I
J
K
L
M
P
R
S
T
W
Ö
Til baka
Abbaye bjór (bjórstíll) - Ale (Öl) - Alkóhól
- Altbier (bjórstíll)
Abbaye Öl :
Abbaye þýðir klaustur og er notað yfir
belgískan
bjórstíl sem bruggaður var í
klaustrum í gamla daga til að hjálpa
munkunum í gegnum föstuna. Í dag eru ekki
allir
klausturbjórar ekta klausturbjórar,
þ.e.a.s. bjór sem er bruggaður innan veggja
raunverulegs klausturs og af raunverulegum
munkum. Til að greina á milli þessara
ekta og óekta klausturbjóra er orðið
Trappist sett á hina raunverulegu
klausturbjóra. Þetta eru þó allt
klausturbjórar í þeim skilningi að þeir eru
bruggaðir á sama hátt og þeir eru yfirleitt
mjög sterkir (hvað alkóhól varaðar),
bragðmiklir, stundum sætir og oft dálítið
frúttaðir.
Klausturbjórar er nær eingöngu framleiddir í
Belgíu en þó eru undantekningar eins og t.d.
Trappist bjórinn frá Hollandi (Koningshoeven).
Í dag eru aðeins til 6 brugghús/klaustur í
heiminum sem brugga hina raunverulegu
klausturbjóra (Trappist) , 5 í Belgíu og svo
eitt í Hollandi.
Ale :
Ale er enska orðið yfir Öl (sjá Öl)
Alkóhól :
Þetta vita nú flestir hvað er, en alkóhól er
samheiti yfir ethyl alcohol eða etanól og
það er akkúrat þetta efni sem gersveppurinn
framleiðir og gerir mann svona létt ruglaðan
í kollinum ef maður fær of mikið af því!
Altbier :
Alt þýður gamall á þýsku og er notað yfir
bjórstíl (t.d. Dusseldorfer alt) í
Þýskalandi sem er bruggaður með gömlu
aðferðinni þ.e.a.s. eins og bjórinn var
bruggaður fyrir 19. öld. Alt bjór er
bruggaður með öl-sveppnum
Saccharomyces
cerevisiae og er því Öl. Bjórinn var geymdur
í ísköldum hellum í langan tíma að gerjun
lokinni til að draga úr hinum frúttaða
eiginleika ölsveppsins. Þetta eru oft
rammir bjórar með ríkt humalbragð. |