1892 Traditional Ale

   
Brugghús : Quidi Vidi Brewing Company
LAND : Nýfundnaland
STÍLL : Öl
ÁFERÐ : Ljós
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 15/9'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi smýgur vel í nös og gælir við mann með karamellu og ferskum frískandi humlum......massa mikil lykt.  Þetta er bragðmikið og fínt öl en hefur ekki þetta mikla sveppabragð sem er svo einkennandi fyrir öl. Langt gott eftirbragð og vottar fyrir karamellu og svo gott áberandi malt og allt er þetta svo í fínu jafnvægi. Þetta öl er framleitt sem eins konar minnisvarði um brunann mikla sem lagði miðbæ ST. Johns í rúst sumarið 1892.  Um 1500 heimili urðu eldinum að bráð og um 12000 manns misstu heimili sín.  Myndin á miðanum er líklega ein síðasta myndin sem tekin var af miðbænum fyrir brunann.
ATH - Atli og Þórdís buðu uppá þetta sögufræga öl!

 

Einkunn:  Fínn bjór!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>